Árskóladagurinn

Opið hús í Árskóla kl. 10:00-13:00 laugardaginn 6. maí

Í kjölfar þemadaga sem að þessu sinni eru tileinkaðir heilsu og umhverfi, verðum við með opið hús í skólanum, laugardaginn 6. maí kl. 10:00-13:00. 

Kaffihús verður opið þar sem nemendur selja kaffi, djús og meðlæti sem þeir hafa bakað.

Einnig verður markaður með ýmsum vörum sem nemendur hafa búið til.

Vinsamlegast athugið að við erum ekki með posa.

Allur ágóði rennur til góðgerðamála í nærumhverfinu.

Vonumst eftir að sjá ykkur sem flest.

Allir velkomnir!

 

Nemendur og starfsfólk Árskóla