Árshátíð miðstigs

Aðsókn á árshátíðarsýningar miðstigs  í Bifröst hefur farið fram úr björtustu vonum og uppselt er á sýningar dagana 24. og 25. janúar. Því hefur verið ákveðið að bæta við aukasýningu fimmtudaginn 26. janúar kl. 17:00.

 Miðaverð er:

Kr. 500,- fyrir leikskólabörn

Kr. 1.000,- fyrir grunnskólabörn

Kr. 1.500,- fyrir fullorðna

 Miðapantanir í síma 453 5216 kl. 14:00-20:00 sýningardagana.