Árshátíð miðstigs

Okkar árlega árshátíð miðstigs Árskóla (6. og 7. bekkjar), verður haldin í félagsheimilinu Bifröst nk. þriðjudag og miðvikudag. Dagskráin verður fjölbreytt að vanda, leikur og söngur úr ýmsum áttum.

Sýningar verða sem hér segir:

Þriðjudagur 4. nóvember kl. 17:00 og 20:00.

Miðvikudagur 5. nóvember kl. 17:00 og 20:00.

Miðaverð er: 

500.- kr. fyrir börn á leikskólaaldri 

1000.- kr. fyrir grunnskólanemendur

1500.- fyrir fullorðna

Miðasala er opin báða dagana í Bifröst 

kl. 14:00 – 17:00 og kl. 19:00 - 20:00.

Símanúmer miðasölu: 453 5216.


Takmarkað sætaframboð.

Verið velkomin, við hlökkum til að sjá ykkur.

Nemendur á miðstigi Árskóla.