Allir með

Allir með í Skagafirði
Allir með í Skagafirði
 
Allir með íþróttaæfingar hefjast með kynningartíma í íþróttahúsinu á Sauðárkróki mánudaginn 28. september kl. 17:30 – 18:15.
Allir með eru íþróttaæfingar fyrir börn með fatlanir og stuðningsþarfir á aldrinum 6 – 16 ára. Loksins eru að hefjast æfingar í Skagafirði, fjórar deildir innan Tindastóls koma að Allir með að þessu sinni: fótbolti, badminton, frjálsar íþróttir og körfubolti.
Mánudaginn 28. september verður kynningartími í íþróttahúsinu á Sauðárkóki kl. 17:30 – 18:15. Þar gefst einstaklingum kostur á að koma og prófa þær greinar sem eru í boði. Æfingarnar eru einstaklingsmiðaðar og ættu allir að geta gert eitthvað við sitt hæfi. Ef það eru einhverjir sem treysta sér ekki í æfinguna þá er fundin lausn á því.  Markmiðið er að allir geti verið með á sínum forsendum.
 
Fyrsti tíminn verður kynning á þeim greinum sem er í boði en eftir það á hver íþróttagrein sinn dag. 
Skráning fer fram á Abler en ekki þarf að skrá sig í kynningartímann.
 
Æfingar eru mánudaga kl 17:30 - 18:15
 
Hér er hægt að skoða heimasíðu Allir með
Hér er hægt að skoða heimasíðu ÍF Íþróttasamband fatlaðra
Hér er hægt að nálgast allar upplýsingar um Allir með í Skagafirði (2) Facebook

Verkefnið „Allir með“ er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra).
Aldís María Jóhannsdóttir er verkefnisstjóri Allir með í Skagafirði.
Ef einhverjar spurningar vakna þá ekki hika við að hafa samband við Aldísi Maríu aldismariajo@gmail.com