1.bekkur fær endurskinsvesti að gjöf

Fulltrúar Kiwanisklúbbsins Drangeyjar í Skagafirði komu í heimsókn í 1. bekk í morgun og færðu nemendum endurskinsvesti að gjöf. Það er mikilvægt að vera vel sýnilegur núna í svartasta skammdeginu. Við færum Kiwanismönnum bestu þakkir fyrir gjöfina og hvetjum krakkana til að vera dugleg að nota vestin. Á myndinni eru 1. bekkingar, ásamt starfsfólki bekkjarins, fulltrúum Kiwanisklúbbsins og lögreglu.