Friðarganga

Við upphaf aðventu ganga allir nemendur og starfsmenn skólans fylktu liði upp Kirkjustíginn og mynda friðarkeðju með því að láta ljós og friðarkveðju ganga á milli. Að lokum er tendrað ljós á krossinum á Nöfunum. Göngunni lýkur á lóð Árskóla þar sem þátttakendur gæða sér á heitu kakói og piparkökum.