Alþjóðlegi Downs-dagurinn

Alþjóðlegi Downs-dagurinn er mánudagurinn 21. mars.

Fólk um allan heim klæðist mislitum sokkum á Downs-deginum til að fagna og vekja athygli á fjölbreytileikanum á táknrænan hátt.

Í Árskóla ætlum við að fagna Downs-deginum mánudaginn 21. mars, með því að klæðast mislitum, ósamstæðum sokkum.

Við vonumst eftir góðri þátttöku nemenda og starfsmanna!