Viðbrögð við gasmengun frá eldgosi

Almannavarnir gefa út tilkynningar til skóla þegar háir mengunartoppar ganga yfir og nauðsynlegt er að fólk haldi sig inni og loki gluggum. Mengunartoppar ganga jafnan hratt yfir, en það breytir því ekki að gosmengun getur legið í loftinu í lægri styrk. Fólk er hvatt til að treysta á eigin skynfæri og skynsemi. Ef fullorðnir finna fyrir einkennum og óþægindum og líður betur inni gildir það sama um börnin. Engin ástæða er til að ætla að SO2 mengun sé hættulegri börnum en fullorðnum, að mati sóttvarnalæknis.       

Á heimasíðum Umhverfisstofnunar og embættis Landlæknis er sérstakur borði merktur gosmenguninni og þar má nálgast allar almennar upplýsingar. Þar er til dæmis gagnlegt að skoða töfluna sem sýnir rétt viðbrögð við SO2 mengun. Hún útlistar viðbrögð eftir styrk mengunar og eftir því hvort um heilbrigt fólk sé að ræða eða fólk sem er viðkvæmt. SO2 taflan er aðgengileg hér: http://www.ust.is/einstaklingar/loftgaedi/so2/ 

Daglegar spár um dreifingu mengunar og loftgæði má nálgast á vef Veðurstofunnar á slóðinni http://www.vedur.is/vedur/spar/textaspar/oskufok/ og styrkur mengunarinnar er mældur og miðlað á vefsíðunni www.loftgæði.is. Fjölmiðlar gegna veigamiklu hlutverki við miðlum upplýsinga til almennings og því er nauðsynlegt að fylgjast grannt með þeim og fylgja leiðbeiningum almannavarna sem þar koma fram.