Valgreinar í 9. og 10. bekk

Valgreinar eru hluti af skyldunámi. Í 9. og 10. bekk er frjálst val nemenda að lágmarki 8 kennslustundir. Leitast er við að hafa námsframboð fjölbreytt til að mæta áhugasviði hvers og eins nemanda eins og kostur er. Nemendum stendur til boða að fá æfingar í íþróttagrein og/eða nám við íþróttaakademíu hjá FNV metna sem valgrein að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og samkvæmt ákveðnum samningi. Einnig stendur nemendum í fullu námi í tónlistarskóla til boða að fá námið þar metið sem valgrein og auk þess geta nemendur fengið þátttöku í Unglingadeildinni Trölla metna sem valgrein. Kynningarbækling um valgreinar er að finna á vef skólans. Breytilegt er milli ára hvaða valgreinar eru kenndar.