Merki skólans

Hugmyndin að merkinu er sótt í umhverfið á Sauðárkróki. Nafirnar liggja meðfram endilöngum bænum og binda bæjarmyndina saman, með klaufum inni á milli – eins og skólinn fylgir nemendum í gegnum öll æskuárin og bindur líf þeirra saman sem mikilvægan þátt í þroska, leik og starfi. 

Stærsti og sterkasti þátturinn í skólastarfinu er engu að síður fólkið. Það er enginn einn – allt skólastarfið byggir á þátttöku og samstarfi margra og þess vegna tákna brekkurnar tvær og klaufin milli þeirra einnig fólk sem sést ganga hönd í hönd og saman fram á við. 

Sólin er forsenda lífs – eins og segja má að í skólastarfinu sé grundvöllur góðrar framtíðar lagður. Hún táknar ungt fólk og uppbyggingu. Sólin táknar einnig skólann, hún er eins konar leiðarstjarna, sem vakir yfir fólkinu hátt á lofti. Litirnir tákna vor, sumar og líf. Grænn er litur vonarinnar, gulur er glaður. Hönnuður merkisins er Áslaug S. Árnadóttir, arkitekt. Hún er fyrrum nemandi skólans.