Dansmaraþon

Dansmaraþon 2026 - árgangur 2011
Dansmaraþon 2026 - árgangur 2011

Dansmaraþon 10. bekkinga 4.–5. nóvember

Dansmaraþon 10. bekkinga í Árskóla hefst miðvikudaginn 4. nóvember kl. 10:00 og lýkur fimmtudaginn 5. nóvember kl. 10:00. Nemendur úr árgangi 2011 dansa því í heilan sólarhring.

Logi hefur stýrt dansinum um árabil. Ingunn Margrét er að taka við af honum og þetta árið stjórna þau dansinum saman. Upphaf og lok maraþonsins verða í íþróttahúsinu en þess á milli dansa nemendur í matsal skólans.

Kaffihús og veitingasala 4. nóvember

Gestum er velkomið að líta við, fylgjast með dansinum og njóta veitinga.

  • Kl. 10:00–13:00: Kaffihús í anddyri íþróttahússins.

  • Frá kl. 15:00: Kaffihús í matsal skólans með nýbökuðu bakkelsi.

  • Frá kl. 18:00: Pizzasneiðar og gos til sölu í matsalnum.

Dansmaraþonbolirnir eru rauðir með ljósbláu letri og fást hjá ritara skólans. Takmarkað magn er í boði.

  1. bekkingar, foreldrar þeirra og starfsfólk þakka einstaklingum og fyrirtækjum stuðninginn við dansmaraþonið.

Öll velkomin!